Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.7.2018

17.7.2018 7:53

Malbikun

Þriðjudaginn 17. júlí er stefnt að því að malbika innstu akrein í Ártúnsbrekku, frá Höfðabakkabrú og niður að mislægum gatnamótum við Réttarholtsveg. Þrengt verður í eina akrein, áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir fræa kl. 09:00 til kl. 19:00.

Á þriðjudagskvöld og nótt 17.-18. júlí er stefnt að því að malbika 3,7 km langan kafla á Akrafjallsvegi. Veginum verður lokað í báðar áttir og allri umferð beint norðan við Akrafjall og í gegnum Akranes.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 19:00 til kl. 07:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Framkvæmdir, vegavinna og umferð

Það hefur stundum verið gagnrýnt hve mikið sé um hvers kyns framkvæmdir og viðhald á vegakerfinu yfir hásumarið, einmitt þegar sumarfrí og ferðamennska standa sem hæst. Við íslenskar aðstæður þarf að nýta þann árstíma þegar helst er hægt að athafna sig en hitt er rétt að vinna á vegum fer illa saman við mikla umferð. Þess vegna er ákaflega brýnt að vegfarendur virði allar merkingar. Hraðatakmarkanir eru forsenda þess að hægt sé að tryggja öryggi starfsmanna og vegfarenda, auk þess að fara betur með bíla og tæki.

Umferðarstýring á Þingvöllum

Upplýsingar um umferðarstjórnun vegna hátíðarfundar Alþingis 18. júlí á Þingvöllum, sjá nánar hér

Lokun á Ölfusárbrú við Selfoss

Vegna viðgerða verður brúin yfir Ölfusá lokuð í viku um miðjan ágúst. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.