Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.3.2018

17.3.2018 11:32

Færð og aðstæður

Vegir eru auðir um allt sunnanvert landið. Hálkublettir eru á nokkrum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum en hálka er á veginum norður í Árneshrepp. 

Á Norður- og Austurlandi eru vegir víðast hvar greiðfærir en á nokkrum leiðum eru hálkublettir. Þokuloft er víða á norðvestanverðu landinu.

Slitlagsskemmdir

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.