Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.1.2019
Færð og aðstæður
Yfirlit: Vetrarfærð er um allt land en almennt gott ferðaveður. Éljagangur á suðvesturlandi.
Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir og éljagangur er á flestum leiðum.
Suðvesturland: Hálka og éljagangur er á Hellisheiði og hálka eða hálkublettir á mörgum leiðum og éljagangur mjög víða.
Vesturland: Hálka eða hálkublettir
eru á flest öllum leiðum. Flughált er á Borgarfjarðarbraut frá Baulu að Reykholti.
Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir eru á vel flestum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp sem og um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.
Norðurland: Hálka er á flestum vegum og snjóþekja á einhverjum útvegum.
Norðausturland: Hálka víðast hvar á svæðinu.
Austurland: Snjóþekja
eða hálka eru á flestum leiðum. Eitthvað um snjókomu eða éljagang á svæðinu. Ófært er um Breiðdalsheiði og
Öxi.
Suðausturland: Snjóþekja eða hálka eru á vegum og einhver éljagangur.
Suðurland: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við breikkun Hringvegarins verður hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.
Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum verður hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig verður hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdarsvæði.
Áætluð verklok eru 1. mars 2019.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/