Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.1.2019

17.1.2019 21:27

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er um allt land en almennt gott ferðaveður. Éljagangur er um sunnanvert landið og á Norðausturlandi.

Suðvesturland: Greiðfært er á Reykjanesi og á Höfuðborgarsvæðinu en á öðrum leiðum er hálka eða snjóþekja. Éljagangur er inn til landsins.

Vesturland: Hálka eða hálkublettir eru á flest öllum leiðum og éljagangur á stöku stað.

Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir eru á vel flestum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp sem og um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.

Norðurland: Hálka er á flestum vegum og snjóþekja á einhverjum útvegum.

Norðausturland: Hálka víðast hvar á svæðinu og éljagangur. 

Austurland: Snjóþekja eða hálka eru á flestum leiðum. Eitthvað um éljagang á svæðinu. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Snjóþekja eða hálka eru á vegum og víða éljagangur.

Suðurland: Þar er hálka eða hálkublettir á vegum. 

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við breikkun Hringvegarins verður hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.

Á afmörkuðum svæðum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum verður hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig verður hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst á vestri enda Hvammsvegar við gatnamót Hringvegar. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdarsvæði.

Áætluð verklok eru 1. mars 2019.


Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/