Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.1.2019

17.1.2019 8:03

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er um allt land en gott ferðaveður.

Suðvesturland: Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða hálkublettir á mörgum öðrum leiðum. Þæfingsfærð er á Grafningsvegi efri.

Vesturland: Hálka eða hálkublettir eru á flest öllum leiðum.

Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir eru á vel flestum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp sem og um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja er á vegum.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar á svæðinu. 

Austurland: Snjóþekja eða hálka eru á flestum leiðum. Snjókoma eða éljagangur víða á svæðinu. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Snjóþekja eða hálka eru á vegum með snjókomu eða éljum víða.

Suðurland: Snjóþekja er austan Hvolsvallar, annars hálka eða hálkublettir. 

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/