Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.10.2017

17.10.2017 19:43

Ábendingar frá veðurfræðingi 17.október kl.15:00

LITUR: GULUR

Hægt og bítandi hvessir í kvöld suðvestanlands. Í nótt og fyrramálið má gera ráð fyrir hviðum allt að 30 m/s á Reykjanesbraut samfara slagveðursrigningu, 30-35 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Að sama skapi undir Eyjafjöllum.  Aðeins lítið eitt mun draga úr þessum hvassa vindi á morgun. 

Færð

Á Norðurlandi eru hálkublettir á Mývatnsöræfum og Dettifossvegi.

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Viðgerðarvinna fer fram á Reykjanesbraut við Smáralind og í rampi niður á Fífuhvammsveg í dag þriðjudaginn 17.okt. Þrengt verður að umferð við vinnusvæðin og umferð stýrt framhjá ef þarf á meðan framkvæmdum stendur. Vinnan fer fram frá kl. 10:00 og fram eftir degi.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Lokun á Hvalfjarðargöngum

Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð í tvær nætur í þessari viku (42. viku) vegna viðhalds og hreingerningar.

Lokað verður aðfaranætur miðvikudagsins 18. og fimmtudagsins 19. október frá miðnætti til kl. 6 að morgni.

Það er árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að vori og hausti af þessu tilefni. Lokun nú er því hefðbundin ráðstöfun og beðist er velvirðingar á óþægindum sem hún kann að valda.

Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru nú flestir orðnir ófærir og allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á fjöllum vegna skemmda á vegi.