Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.9.2018
Framkvæmdir
Mánudaginn 17. september er stefnt að því að malbika báðar akreinar og gatnamót á Vesturlandsvegi við Borgarfjarðarbraut. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Búast má við umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08.00 og 22.00.Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Hvalfjarðargöng verða lokuð fjórar nætur vegna viðhalds
Hvalfjarðargöng verða lokuð í fjórar nætur í vikunni vegna viðhalds og hreingerningar frá miðnætti til kl 6 að morgni. Lokað verður aðfaranótt þriðjudags 18., miðvikudags 19., fimmtudags 20. og föstudags 21. september.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.