Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.8.2017

16.8.2017 14:51

Framkvæmdir

Af óviðráðanlegum orsökum náðist ekki að klára malbikun á Hellisheiði sem ljúka átti í gær og því er stefnt að  því að ljúka verkinu í kvöld og nótt. Um er að ræða 1200 m kafla efst í Skíðaskálabrekku á akrein til austurs. Lokað verður fyrir umferð til austurs um Suðurlandsveg og umferð beint um Þrengslaveg. Umferð sem á erindi í Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá en umferð til vesturs verður ótrufluð.  Áætlað er að vinnan standi yfir milli 19:00 og 03:00. - Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og  sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Nú er að hefjast lokaáfanginn við gólfviðgerð á Borgarfjarðarbrú. Umferð verður stýrt með ljósum. Verkinu á að ljúka 14. nóvember.

Á morgun, fimmtudaginn 17. ágúst, er stefnt að því að fræsa og malbika hægri akrein á Miklubraut, frá Flugvallarvegi í átt að Lönguhlíð. Akreininni verður lokað, umferðarhraði lækkaður og má búast við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 18:00 til kl. 06:00. -  Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Verið er að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut, annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Umferð hefur verið hleypt á hringtorgið við Aðalgötu en Aðalgata verður lokuð fram í byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir á Þjóðbraut eða að aka um Garðaveg.  Verkinu í heild á að ljúka í september.

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Verið er að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér