Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.7.2018
Framkvæmdir, vegavinna og umferð
Það hefur stundum verið gagnrýnt hve mikið sé um hvers kyns framkvæmdir og viðhald á vegakerfinu yfir hásumarið, einmitt þegar sumarfrí og ferðamennska standa sem hæst. Við íslenskar aðstæður þarf að nýta þann árstíma þegar helst er hægt að athafna sig en hitt er rétt að vinna á vegum fer illa saman við mikla umferð. Þess vegna er ákaflega brýnt að vegfarendur virði allar merkingar. Hraðatakmarkanir eru forsenda þess að hægt sé að tryggja öryggi starfsmanna og vegfarenda, auk þess að fara betur með bíla og tæki.
Malbikun
Mánudaginn 16. júlí er stefnt að því að malbika á Eyrarvegi á Selfossi, frá hringtorgi við Fossveg að Kirkjuvegi. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 09:00 til kl. 15:00.
Mánudagskvöld og nótt 16. - 17. júlí er stefnt að því að malbika ystu tvær akreinar í Ártúnsbrekku, frá Höfðabakkabrú og niður að mislægum gatnamótum við Reykjanesbraut. Þrengt verður í eina akrein, en hægt er að komast hjáleið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 18:00 til kl. 07:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.Umferðarstýring á Þingvöllum
Upplýsingar um umferðarstjórnun vegna hátíðarfundar Alþingis 18. júlí á Þingvöllum, sjá nánar hér
Lokun á Ölfusárbrú við Selfoss
Vegna viðgerða verður brúin yfir Ölfusá lokuð í viku um miðjan ágúst. Sjá nánar hérViðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.