Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.3.2018

16.3.2018 15:33

Færð og aðstæður

Vegir eru auðir um allt sunnan- og vestanvert landið. Hálkublettir eru á nokkrum vegum á Vestfjörðum og búið er að moka norður í Árneshrepp en þar er þæfingur og hálka. 

Á Norður- og Austurlandi eru vegir víðast hvar greiðfærir en sums staðar eru hálkublettir á útvegum. Snjóþekja er á Dettifossvegi.

Slitlagsskemmdir

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður. Ástandið er verst undir Eyjafjöllum og við Kirkjubæjarklaustur.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.