Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.3.2018

16.3.2018 6:42

Færð og aðstæður

Vegir eru auðir um allt sunnanvert landið. Varað er við talsvert miklum slitlagsskemmdum undir Eyjafjöllum, á Reynisfjalli og austur fyrir Kirkjubæjarklaustur. Verst er ástandið á kafla rétt austan við Klaustur.

Á Snæfellsnesi og í Dölum eru hálkublettir á fáeinum vegum. Eins eru víðast aðeins hálkublettir á Vestfjörðum. Verið er að opna veginn í Árneshrepp en þar er snjóþekja.

Á Norðurlandi eru vegir víðast hvar greiðfærir en þó er hálka á fáeinum útvegum og sums staðar eru hálkublettir. Snjóþekja er á Dettifossvegi.

Vegir á Austurlandi eru ýmist auðir eða aðeins í hálkublettum. Autt er með ströndinni suður um.

Slitlagsskemmdir

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.