Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.1.2019

16.1.2019 17:49

Færð og aðstæður


Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir á einhverjum leiðum.

Suðvesturland: Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum en hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum þó nokkuð sé orðið greiðfært. Þæfingsfærð er á Grafningsvegi efri.

Vesturland: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á öllum leiðum.

Vestfirðir: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á öllum leiðum. Hálka og þoka er á Steingrímsfjarðarheiði.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum.

Norðausturland: Víða snjóþekja eða hálka með éljagangi eða skafrenningi víða á svæðinu. 

Austurland: Snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum og einhver éljagangur. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Hálka er að mestu milli Hafnar og Víkur.

Suðurland: Hálkublettir á Þjóðvegi 1 en hálka á útvegum. 

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/