Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.1.2019
Færð og aðstæður
Holtavörðuheiði: Vegna vinnu við að ná upp flutningabíll sem valt út af veginum á Holtavörðuheiði má búast við umferðartöfum frá kl. 13.30 til kl. 15.30. Lögregla og björgunarsveitir stjórna umferð.
Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir á flestum leiðum.
Suðvesturland: Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum en hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum þó nokkuð sé orðið greiðfært. Þæfingsfærð er á Grafningsvegi efri.
Vesturland: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á öllum leiðum.
Vestfirðir: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á öllum leiðum. Hálka og þoka er á Steingrímsfjarðarheiði.
Norðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum. Éljagangur er í Eyjafirði.
Norðausturland: Víða snjóþekja eða hálka og éljagangur eða skafrenningur á mest öllu svæðinu. Þungfært er á Hólasandi.
Austurland: Snjóþekja
eða hálka er á flestum leiðum og éljagangur eða skafrenningur er á fjallvegum. Ófært er á Breiðdalsheiði og
Öxi.
Suðausturland: Hálka er að mestu frá Höfn og í Vík.
Suðurland: Hálkublettir á Þjóðvegi 1 en hálka á útvegum.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/