Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.1.2019
Lokað
Vegna vinnu við að ná upp flutningabíll sem valt út af veginum á Holtavörðuheiði má búast við að vegurinn verði lokaður frá kl. 13.30 til kl. 15.30.
Færð og aðstæður
Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir á flestum leiðum.
Suðvesturland: Hálka er í Þrengslum, á Hellisheiði en hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum. Greiðfært er á Reykjanesbraut og á Kjalarnesi. Þæfingsfærð er á Grafningsvegi efri.
Vesturland: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á öllum leiðum.
Vestfirðir: Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á öllum leiðum.
Norðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum. Éljagangur er á Tröllaskaga og í Eyjafirði.
Norðausturland: Víða snjóþekja eða hálka og éljagangur eða skafrenningur. Þungfært er á Hólasandi.
Austurland: Snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum og éljagangur. Skafrenningur er á fjallvegum. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi. Miklar hviður eru í Hamarsfirði.
Suðausturland: Hálka er frá Höfn og í Vík og skafrenningur við Kvísker.
Suðurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/