Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.10.2017
Færð
Hálkublettir eru nú á flestum fjallvegum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi en hálka er á Kleifaheiði, Mikladal og Hálfdán.
Lokun á Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð í þrjár nætur í þessari viku (42. viku) vegna viðhalds og hreingerningar.
Lokað verður
aðfaranætur þriðjudags 17., miðvikudags 18. og fimmtudags 19. október frá
miðnætti til kl. 6 að morgni.
Það er árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að vori og hausti af þessu tilefni. Lokun nú er því hefðbundin ráðstöfun og beðist er velvirðingar á óþægindum sem hún kann að valda.
Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.
Hálendisvegir
Færð á hálendisvegum hefur spillst og hafa margir þeirra orðið ófærir.
Við bendum vegfarendum á að fylgjast vel með færðarkortinu og veðurspá
ef þeir ætla inn á hálendið.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 er opinn að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga. Því er veginum lokað við Ytra Nesgil og öll umferð upp úr Fnjóskadal er bönnuð.