Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.9.2018

15.9.2018 15:51


Tafir á umferð á þjóðvegi nr. 30 

Í dag laugardaginn 15. september gætu orðið smávægilegar tafir á vegi  nr. 30 Skeiðavegi kl. 13:00 og eitthvað fram eftir degi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu http:// www. skeidgnup.is


Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.