Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.8.2017

15.8.2017 9:16

Framkvæmdir

Í kvöld, þriðjudaginn 15. ágúst, er stefnt að því malbika á Hringvegi 1 á Hellisheiði efst í Skíðaskálabrekku á 4 km kafla til austurs. Áætlað er að vinna frá kl. 19.00 til kl. 05.00. Lokað verður fyrir umferð til austurs á þessum kafla og umferð beint um Þrengslaveg en umferð til vesturs verður ótrufluð. Umferð sem á erindi í Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá.

Í dag er verið að malbika á Borgarbraut á Akureyri, frá Hringvegi 1 að Dalsbraut og er kaflanum lokað á meðan eða frá því í morgunsárið og eitthvað fram eftir degi. Hjáleiðir eru vel merktar.

Í dag og á morgun verður Orkubú Vestfjarða með framkvæmdir við veg hjá Brekkuvöllum á Barðaströnd.  Vegurinn lokast ekki en önnur akreinin getur verið lokuð annað slagið.

Verið er að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Umferð hefur verið hleypt á hringtorgið við Aðalgötu en Aðalgata verður lokuð fram í byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir á Þjóðbraut eða að aka um Garðaveg.  Verkinu í heild á að ljúka í september.

Hvalfjarðargöng

Unnið verður að viðhaldi í Hvalfjarðargöngum í nótt, aðfaranótt miðvikudagsins 16. ágúst, frá miðnætti til kl. 6 í fyrramálið. Göngin verða opin á meðan en umferðinni stýrt eftir þörfum og aðstæðum. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og þeir mega búast við smávægilegum töfum.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Verið er að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér