Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.5.2018

15.5.2018 14:02

Færð og aðstæður

Það er að mestu greiðfært á landinu en þó eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum og krapi á Steingrímsfjarðarheiði.

Framkvæmdir

Unnið verður að viðgerðum á Vesturlandsvegi, frá Álafossvegi að Þingvallavegi, í dag þriðjudaginn 15.maí. Þrengt verður að umferð við vinnusvæðin og umferð stýrt framhjá ef þarf á meðan framkvæmdum stendur. Vinnan fer fram frá kl. 13:00 og fram eftir degi.

Þriðjudagskvöld 15. maí er stefnt að því að fræsa hringtorg á Suðurlandsvegi, austan við Selfoss. Hringtorginu verður ekki lokað en umferð verður stýrt í gegn og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 21:00 til kl. 00:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er beinlínis lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.