Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir eru að heita má auðir um allt sunnanvert landið, frá Faxaflóa austur á Firði en syðst á landinu er varað við talsvert miklum slitlagsskemmdum.
Á Snæfellsnesi og í Dölum eru hálkublettir eða hálka á fáeinum vegum. Eins eru víðast aðeins hálkublettir á Vestfjörðum en sums staðar er eitthvað meiri hálka á fjallvegum. Verið er að opna norður í Árneshrepp.
Á Norðurlandi er snjóþekja á Öxnadalsheiði og sums staðar eru hálkublettir eða hálka á vegum í Þingeyjarsýslum. Það er hált á köflum á Austurlandi og sums staðar krapi á vegum en autt með ströndinni suður um.
Slitlagsskemmdir
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.