Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir á
Suður- og Suðvesturlandi eru að heita má greiðfærir. Eins er mikið autt á Vesturlandi en þar eru þó hálkublettir á köflum og á fáeinum vegum er hálka eða krapi.
Það eru víðast aðeins hálkublettir á Vestfjörðum en sums staðar er eitthvað meiri hálka á fjallvegum.
Á Norðurlandi er snjóþekja á Öxnadalsheiði og sums staðar eru hálkublettir eða hálka á vegum í Þingeyjarsýslum.
Það er hált á köflum á Austurlandi og sums staðar krapi á vegum en autt með ströndinni suður um.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Nýjar takmarkanir taka gildi núna klukkan átta. (Nánari upplýsingar í s. 1777.)
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.