Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.1.2019
Færð og aðstæður
Yfirlit: Vetrarfærð er á öllu landinu og frekar sæmt ferðaveður á fjallvegum á Vestfjörðum. Á Norður- og Austurlandi er víða snjóþekja eða þæfingsfærð og snjókoma eða éljagangur og sumsstaðar blint.Suðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum.
Suðvesturland: Hálkublettir á Reykjanesbraut og Kjalarnesi en hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Mosfellsheiði.
Vesturland: Þar er hálka eða snjóþekja mjög víða en þungfært á Holtavörðuheiði en unnið að hreinsun. Ófært er á Fróðárheiði og í Álftafirði.
Vestfirðir: Snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð á vegum og skafrenningur á fjallvegum. Ófært er á
Þröskuldum og þungfært á Steingrímsfjarðarheiði en unnið að hreinsun.
Norðurland: þar er víða snjóþekja á vegum og él eða snjókoma. Þungfært er í Héðinsfirði en unnið að hreinsun. Ófært er á Siglufjarðarvegi og í Héðinsfirði.
Norðausturland: Víða snjóþekja eða þæfingsfærð og þungfært á Möðrudalsöræfum. Ófært er á Tjörnesi og Hófaskarði en unnið að hreinsun.
Austurland: Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum en þæfingsfærð á köflum milli Fáskrúðsfjarðar og Hafnar en unnið að hreinsun. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/