Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.1.2019

15.1.2019 7:08

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er á öllu landinu og frekar sæmt ferðaveður á fjallvegum á Vestfjörðum. Á Norður- og Austurlandi er víða þæfingsfærð eftir nóttina og snjókoma eða éljagangur og sumsstaðar blint.

Suðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum.

Suðvesturland: Hálkublettir á Reykjanesbraut og Kjalarnesi en hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Mosfellsheiði. 

Vesturland: Hálka eða snjóþekja mjög víða en þungfært á Holtavörðuheiði en unnið að hreinsun. Þæfingsfærð er á Vatnaleið og á norðanverðu Snæfellsnesi.

Vestfirðir:  Ófært er á  Þröskuldum og þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og ekkert ferðaveður eins og er. Verið er að hreinsa aðrar leiðir. 

Norðurland: Snjóþekja eða þæfingsfærð og víða él eða snjókoma. Ófært er á Siglufjarðarvegi og í Héðinsfirði en unnið að hreinsun.

Norðausturland: Víða snjóþekja eða þæfingsfærð og þungfært á Möðrudalsöræfum og í Þistilfirði. Ófært er á Tjörnesi og Hófaskarði en unnið að hreinsun.

Austurland:  Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum en víða þæfingsfærð milli Fáskrúðsfjarðar og Hafnar en unnið að hreinsun.  Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.


Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/