Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.1.2019

15.1.2019 12:29

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er á öllu landinu og  um norðanvert landið er víða éljagangur, snjókoma og skafrenningur. Beðið er með mokstur á  Þröskuldum, Siglufjarðarvegi, Tjörnesi og Hófaskarði vegna veðurs.

Suðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum og sumsstaðar éljagangur.

Suðvesturland: Hálkublettir á Kjalarnesi en hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Mosfellsheiði og Kjósarskarði.  

Vesturland: Þar er hálka eða  snjóþekja á vegum og víða skafrenningur. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Ófært í Álftafirði og vegurinn um Fróðárheiði er lokaður.

Vestfirðir: Snjóþekja eða hálka á vegum og skafrenningur á fjallvegum. Þæfingsfærð og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði en ófært á Þröskuldum og beðið með mokstur vegna veðurs.

Norðurland: Þar er hálka eða snjóþekja á vegum og víða él eða snjókoma. Ófært er á Siglufjarðarvegi.

Norðausturland: Víða snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð og éljagangur og sumsstaðar skafrenningur. Þungfært er á Hólasandi. Ófært er á Tjörnesi og Hófaskarði og beðið með mokstur vegna veðurs.

Austurland:  Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og éljagangur eða snjókoma. Búið er að opna yfir Vatnsskarð eystra og þar er þæfingsfærð. Ófært er á  Breiðdalsheiði og Öxi.

Suðausturland: Hálka er frá Höfn og í Vík og él á stöku stað.


Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/