Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.1.2019
Færð og aðstæður
Yfirlit: Vetrarfærð er á öllu landinu og um norðanvert landið er víða éljagangur, snjókoma og skafrenningur. Beðið er með mokstur á Þröskuldum, Siglufjarðarvegi, Tjörnesi og Hófaskarði vegna veðurs.Suðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum og sumsstaðar éljagangur.
Suðvesturland: Hálkublettir á Kjalarnesi en hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Mosfellsheiði og Kjósarskarði.
Vesturland: Þar er hálka eða snjóþekja á vegum og víða skafrenningur. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Ófært í Álftafirði og vegurinn um Fróðárheiði er lokaður.
Vestfirðir: Snjóþekja eða hálka á vegum og skafrenningur á fjallvegum. Þæfingsfærð og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði en ófært á Þröskuldum og beðið með mokstur vegna veðurs.
Norðurland: Þar er hálka eða snjóþekja á vegum og víða él eða snjókoma. Ófært er á Siglufjarðarvegi.
Norðausturland: Víða snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð og éljagangur og sumsstaðar skafrenningur. Þungfært er á Hólasandi. Ófært er á Tjörnesi og Hófaskarði og beðið með mokstur vegna veðurs.
Austurland: Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og éljagangur eða snjókoma. Ófært er á Vatnsskarði eystra, Breiðdalsheiði og Öxi.
Suðausturland: Hálka er frá Höfn og í Vík og él á stöku stað.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/