Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.1.2019
Færð og aðstæður
Yfirlit: Vetrarfærð er á öllu landinu og víða éljagangur, snjókoma og skafrenningur um norðanvert landið. Beðið er með mokstur á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Tjörnesi og Hófaskarði vegna veðurs.Suðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum og sumsstaðar éljagangur.
Suðvesturland: Hálkublettir á Kjalarnesi en hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Mosfellsheiði.
Vesturland: Þar er hálka eða snjóþekja á vegum og víða skafrenningur. Ófært er á Fróðárheiði og í Álftafirði.
Vestfirðir: Snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð á vegum og skafrenningur á fjallvegum. Ófært er á
Þröskuldum og þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og beðið með mokstur vegna slæms veðurs.
Norðurland: Þar er hálka, snjóþekja eða þæfingsfærð á vegum og él eða snjókoma. Ófært er á Siglufjarðarvegi og í Héðinsfirði.
Norðausturland: Víða snjóþekja eða þæfingsfærð og éljagangur og sumsstaðar skafrenningur. Ófært er á Tjörnesi og Hófaskarði og beðið með mokstur vegna veðurs.
Austurland: Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og snjókoma með ströndinni. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/