Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 15.1.2019

15.1.2019 8:45

Færð og aðstæður

Yfirlit: Vetrarfærð er á öllu landinu og  víða éljagangur, snjókoma og skafrenningur um norðanvert landið. Beðið er með mokstur á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Tjörnesi og Hófaskarði vegna veðurs.

Suðurland: Hálka eða snjóþekja á vegum.

Suðvesturland: Hálkublettir á Reykjanesbraut og Kjalarnesi en hálka á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Mosfellsheiði. 

Vesturland: Þar er hálka eða snjóþekja á vegum og víða skafrenningur. Ófært er á Fróðárheiði og í Álftafirði.

Vestfirðir: Snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð á vegum og skafrenningur á fjallvegum. Ófært er á Þröskuldum og þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og beðið með mokstur vegna slæms veðurs.

Norðurland: Þar er hálka, snjóþekja eða þæfingsfærð á vegum og él eða snjókoma. Ófært er á Siglufjarðarvegi og í Héðinsfirði. 

Norðausturland: Víða snjóþekja eða þæfingsfærð og éljagangur og sumsstaðar skafrenningur. Ófært er á Tjörnesi og Hófaskarði og beðið með mokstur vegna veðurs.

Austurland:  Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum en þæfingsfærð milli Hvalness og Hafnar en unnið að hreinsun. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.


Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/