Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

7.3.2017 20:37

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi er að mestu greiðfært en þó eru hálkublettir á nokkrum köflum, einkum í uppsveitum.

Það er nokkur hálka eða hálkublettir á Vesturlandi og á Vestfjörðum er einnig víða hálka eða hálkublettir á fjallvegum en mikið autt á láglendi.

Á Norður- og Austurlandi eru hálkublettir nokkuð víða og hálka á Dettifossvegi og í Bárðardal.  Greiðfært er með suðausturströndinni.

Múlagöng

Vegna vinnu í Múlagöngum dagana 7 mars til 8 mars má reikna með umferðartöfum þar frá klukkan 21:00 til 06:00 að morgni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á Snæfellsnesvegi (54) frá Borgarnesi og öllum vegum á Snæfellsnesi.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.