Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.9.2018

14.9.2018 9:44

Tímabundin lokun Breiðholtsbrautar

Breiðholtsbraut verður lokað tímabundið laugardaginn 15. september vegna framkvæmda við nýja göngubrú milli Seljahverfis og Fellahverfis. Lokunin hefst kl. 6:00 og er áætlað að opna vegkaflann aftur kl. 12:00 sama dag. Á meðan framkvæmdir standa yfir verður Breiðholtsbraut lokuð milli gatnamóta Seljaskóga og Jaðarsels ásamt því að aðgangur frá Norðurfelli verður lokaður.  Vegfarendum er bent á hjáleið um Seljabraut og að fylgjast með vegmerkingum.

Tafir á umferð á þjóðvegum nr. 30 og 32

Tafir verða á umferð á þjóðvegi nr. 32 föstudaginn 14. september, frá Fossnesi að Skaftholtsréttum frá kl. 08:00 – 13:00 en hjáleiðir eru þó færar að hluta. Þann sama dag, 14. september verður  Þjórsárdalsvegur  nr. 32 frá Þrándarholti  að  Sandlækjarholti, ( Sandlækjarmýri) lokaður  frá kl. 16:00 – 18:00, hjáleið aðeins fær um Landsveit!

Laugardaginn 15. september gætu orðið smávægilegar tafir á vegi  nr. 30 Skeiðavegi kl. 13:00 og eitthvað fram eftir degi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu http:// www. skeidgnup.is

Tafir á Grindavíkurvegi

Malbiksviðgerðir verða á Grindavíkurvegi, á milli Bláalónsafleggjara og Grindavíkur, laugardaginn 15.september. Vinnusvæðum verður lokað á annarri akrein í einu og umferð stýrt framhjá. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmdum stendur en búast má við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 9:00 til kl. 14:00

Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.