Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.8.2017
Framkvæmdir
Í kvöld
og annað kvöld (mánudag 14 ágúst og þriðjudag 15 ágúst) er stefnt að því malbika á Hringvegi 1 á Hellisheiði efst í
Skíðaskálabrekku á 4 km kafla til austurs. Áætlað er að vinna frá kl. 19.00 til kl. 05.00 báða dagana. Lokað verður fyrir umferð til
austurs á þessum kafla og umferð beint um Þrengslaveg en umferð til vesturs verður ótrufluð. Umferð sem á erindi í
Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá.
Unnið verður við brúna yfir Laxá í Refasveit (á vegi 74, Skagavegi) frá klukkan 16:00 í dag og fram til miðnættis. Hjáleið er fyrir minni bíla en stærri bílum verður hleypt yfir brúna á hálftíma fresti.
Á morgun, þriðjudaginn 15. ágúst verður malbikað á Borgarbraut á Akureyri, frá Hringvegi 1 að Dalsbraut og verður kaflanum lokað á meðan eða frá kl. 06:00 og eitthvað fram eftir degi. Hjáleiðir verða vel merktar.
Umferð um Reykjanesbraut hefur verið
færð yfir á nýtt hringtorg og Aðalgata verður lokuð fram í byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir
á Þjóðbraut eða að aka um Garðaveg.
Hvalfjarðargöng
Unnið verður að viðhaldi í Hvalfjarðargöngum
aðfaranætur þriðjudags 15. og miðvikudags 16. ágúst, frá miðnætti til
kl. 6 að morgni. Göngin verða opin á meðan en umferðinni stýrt eftir
þörfum og aðstæðum. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar
og þeir mega búast við smávægilegum töfum.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.
Verið er að byggja nýtt hringtorg á Krýsuvíkurvegi (42),
en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut
(Klukkutorg). Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun
1. september 2017.
Eins er verið að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður þar og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.