Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.8.2017

14.8.2017 11:39

Framkvæmdir

Í dag, mánudaginn 14. ágúst er verið að fræsa og malbika hægri akrein á Hafnarfjarðarvegi, frá Hamraborg í Kópavogi í átt að Fossvogi. Akreininni er lokað, umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum til kl. 14:30. - Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Í kvöld og annað kvöld (mánudag 14 ágúst og þriðjudag 15 ágúst) er stefnt að því malbika á Hringvegi 1 á Hellisheiði efst í Skíðaskálabrekku á 4 km kafla til austurs. Áætlað er að vinna frá kl. 19.00 til kl. 05.00 báða dagana. Lokað verður fyrir umferð til austurs á þessum kafla og umferð beint um Þrengslaveg en umferð til vesturs verður ótrufluð. Umferð sem á erindi í Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá.

Unnið verður við brúna yfir Laxá í Refasveit (á vegi 74, Skagavegi) frá klukkan 16:00 í dag og fram til miðnættis. Hjáleið er fyrir minni bíla en stærri bílum verður hleypt yfir brúna á hálftíma fresti.

Umferð um Reykjanesbraut hefur verið færð yfir á nýtt hringtorg og Aðalgata verður lokuð fram í byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir á Þjóðbraut eða að aka um Garðaveg.

Hvalfjarðargöng

Unnið verður að viðhaldi í Hvalfjarðargöngum aðfaranætur þriðjudags 15. og miðvikudags 16. ágúst, frá miðnætti til kl. 6 að morgni. Göngin verða opin á meðan en umferðinni stýrt eftir þörfum og aðstæðum. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og þeir mega búast við smávægilegum töfum.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Verið er að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Eins er verið að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður þar og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér