Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.8.2017

14.8.2017 8:33

Framkvæmdir

Í dag, mánudaginn 14. ágúst er stefnt að því að fræsa og malbika hægri akrein á Hafnarfjarðarvegi, frá Hamraborg í Kópavogi í átt að Fossvogi. Akreininni verður lokað, umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 09:00 til kl. 14:30. - Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Umferð um Reykjanesbraut hefur verið færð yfir á nýtt hringtorg og Aðalgata verður lokuð fram í byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir á Þjóðbraut eða að aka um Garðaveg.

Unnið verður við brúna yfir Laxá í Refasveit (á vegi 74, Skagavegi) frá klukkan 16:00 í dag og fram til miðnættis. Hjáleið er fyrir minni bíla en stærri bílum verður hleypt yfir brúna á hálftíma fresti.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Verið er að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Eins er verið að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður þar og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér