Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.6.2017
Framkvæmdir á Reykjanesbraut miðvikudaginn 14. júní
Í dag verður unnið við að fræsa og malbika tvær akreinar
á Reykjanesbraut vestan megin við gatnamót við
Grindavíkurveg, í átt að Reykjavík. Annarri
akreininni verður lokað í einu og
umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar
umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 8:00 til kl. 16:00.
Einnig verður unnið að fræsingu á öxl
frá Grindavíkurvegi og að næstu gatnamótum, í átt að Keflavík. Akreininni
verður lokað á meðan og umferðarhraði lækkaður
framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 11:00 til kl. 18:00
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Framkvæmdir á Grindavíkurvegi fimmtudaginn 15. júní
Fimmtudaginn 15. júní er
stefnt að því að malbika öxl frá Grindavíkurvegi og
að næstu gatnamótum, í átt að Keflavík. Akreininni verður lokað á
meðan og umferðarhraði lækkaður framhjá
vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 8:00 til kl. 20:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst.
Vegna vinnu við
sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman
tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.
Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 24 júní).
Einnig er unnið að byggingu nýs hringtorgs á Krýsuvíkurvegi (42),
en um er að
ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg). Í
upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og
síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið
framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun
1. september 2017.
Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðin.
Umferðartafir á Hringvegi
Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.
Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00 fram til 30. júní vegna framkvæmda.