Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.3.2018

14.3.2018 15:09

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir.

Á Vesturlandi eru hálkublettir allvíða en á fáeinum vegum er hálka, snjóþekja eða krapi. 

Það eru hálkublettir á vegum á Vestfjörðum en hálka og skafrenningur er þó á Klettshálsi og snjóþekja og skafrenningur á Þröskuldum.

Á Norðurlandi er mikið til autt austur í Skagafjörð en þar fyrir austan er hált á köflum og sums staðar snjóþekja.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi, raunar þæfingur á Fjarðarheiði, en greiðfært er svo með suðausturströndinni.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.