Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.3.2018

14.3.2018 14:02

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum og éljagangur er mjög víða. Snjóþekja og éljagangur á Bröttubrekku. 

Það eru hálkublettir á vegum á Vestfjörðum en hálka og skafrenningur er þó á Klettshálsi og snjóþekja og skafrenningur á Þröskuldum.

Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en eitthvað er um hálkublettir.

Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Éljagangur mjög víða.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi. Þæfingur er á Fjarðarheiði.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu auðir.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.