Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.3.2018

14.3.2018 6:52

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálka er þó á Hellisheiði og Þrengslum en hálkublettir eru á Mosfellsheiði og eitthvað um éljagang.

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Snæfellsnesi og í Dölum. Hálka er á Fróðárheiði.

Það eru hálkublettir á vegum á Vestfjörðum.

Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálkublettir eru á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi.

Á Norðausturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði en þæfingur er á Hófaskarði.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi og víða skafrenningur. Þæfingur og mikill skafrenningur er á Fjarðarheiði en ófært er á Vatnsskarði eystra.

Hálka, hálkublettir og snjóþekja er með suðurströndinni og víða frekar hvasst.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.