Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir á
Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á
Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði og eitthvað um éljagang.
Á
Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Snæfellsnesi og í Dölum. Hálka er á Fróðárheiði.
Það eru hálkublettir á vegum á Vestfjörðum.
Vegir eru
nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálkublettir eru á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi.
Á Norðausturlandi er hálka eða
hálkublettir á vegum. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði en þæfingur er á Hófaskarði.
Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi og víða skafrenningur. Ófært er á Vatnsskarði eystra.
Hálka, hálkublettir og snjóþekja er með suðurströndinni og víða frekar hvasst.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.