Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.2.2019

14.2.2019 7:22

Færð og aðstæður

Höfuðborgarsvæðið: Snjóþekja á stofnbrautum enda éljar.

Suðvesturland: Það éljar á Suðvesturlandi og er víðast hvar snjóþekja á vegum.

Vesturland: Víða autt eða aðeins í hálkublettum en þó hálka m.a. á Holtavörðuheiði, Fróðárheiði og Laxárdalsheiði.

Vestfirðir: Hálka eða snjóþekja víðast hvar og sumstaðar éljagangur.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja, og skafrenningur við utanverðan Tröllaskaga.

Norðausturland: Hálka á flestum vegum en þó sumstaðar snjóþekja.

Austurland: Það er hálka á fjallvegum og til landsins en mikið til greiðfært með ströndinni.

Suðausturland:
Greiðfært austan til en sumstaðar nokkur hálka vestan Öræfa.

Suðurland: Snjóþekja eða hálka á flestum vegum og éljagangur.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Vegur getur því verið háll áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/