Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 14.12.2017

14.12.2017 18:40

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. 

Færð á vegum

Það er vetrarfærð nánast um allt land, hálka eða hálkublettir - og snjóþekja á fáeinum vegum en víðast hæglætisveður og aðstæður til ferðalaga að því leyti góðar.

Öxi er ófær.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.