Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.5.2018

13.5.2018 13:30

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er beinlínis lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Stutt lokun á Heydalsvegi

Vegna umferðaróhapps er Heydalsvegur á Snæfellsnesi lokaður um stund nálægt bænum Mýrdal. Reiknað er með að vegurinn opnist fyrir klukkan þrjú.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.