Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.3.2018

13.3.2018 21:52

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum.

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eða hálka á Snæfellsnesi og í Dölum.

Það er hálka eða hálkublettir á vegum á Vestfjörðum.

Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálkublettir eru á Þverárfjalli og hálka eða hálkublettir víða í Skagafirði.  Á Norðausturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum og skafrenningur með ströndinni.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi og víða skafrenningur. Ófært er á Vatnsskarði eystra.

Snjóþekja, krapi og snjókoma er með suðurströndinni og víða frekar hvasst. Hvassviðri er undir Eyjafjöllum og á Reynisfjalli.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.