Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eða hálka á Snæfellsnesi og í Dölum.
Það er hálka
eða hálkublettir á vegum á Vestfjörðum.
Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálkublettir eru á Þverárfjalli og hálka eða hálkublettir víða í Skagafirði. Á Norðausturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum og skafrenningur með ströndinni.
Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi. Þæfingur og skafrenningur er á Vatnsskarði eystra.
Snjóþekja, krapi og snjókoma er með suðurströndinni. Mjög hvasst er undir Eyjafjöllum og á Reynisfjalli.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.