Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.3.2018

13.3.2018 12:13

Ábendingar frá veðurfræðingi

Litur: Gulur

Fram undir hádegi í dag má búast við byljóttum vindi og hviðum allt að 35-40 m/s undir A -Eyjafjöllum, og á Reynisfjalli.  Einnig í Öræfum við Sandfell og Svínafell. 

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum.

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir í Borgarfirði en hálkublettir eða hálka á Snæfellsnesi og í Dölum.

Það er hálka eða hálkublettir á vegum á Vestfjörðum. Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði.

Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálkublettir á Þverárfjalli og hálka eða hálkublettir víða í Skagafirði.  Á Norðausturlandi er hálka eða hálkublettir á vegum.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi en greiðfært er að mestu með suðausturströndinni. Þungfært og skafrenningur er á Vatnsskarði eystra.  Mjög hvasst er undir Eyjafjöllum og á Reynisfjalli.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.