Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.2.2019

13.2.2019 12:25

Færð á vegum

Suðvesturland: Hálka eða hálkublettir víðast hvar en krapi er í Hvalfirði og á Kjósarskarðsvegi.

Vesturland: Víðast hvar er hálka eða hálkublettir og jafnvel greiðfært.

Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.

Norðurland: Hálka eða hálkublettir og jafnvel greiðfært á köflum. Éljagangur í Eyjafirði og í uppsveitum Skjálfanda.

Norðausturland: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum og einhver éljagangur.

Austurland: Hálka er á Héraði og á fjallvegum en hálkublettir eða jafnvel greiðfært með ströndinni.

Suðausturland:
Hálkublettir en víða hálka á útvegum.

Suðurland: Flughálka er á Grafningsvegi sunnan Nesjavalla en krapi á Þingvallavegi og Grafningsvegi norðan Nesjavalla. Annars er hálka eða hálkublettir mjög víða.


Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/