Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.2.2019

13.2.2019 7:23

Færð á vegum

Höfuðborgarsvæðið: Greiðfært er á öllum stofnbrautum á Höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesbrautinni.

Suðvesturland: Hálka er á sunnanverðu Reykjanesi. Hálka er í Þrengslum og Mosfellsheiði en hálkublettir eru á Hellisheiði. Krapi er í Hvalfirði og á Kjósarskarðsvegi.

Vesturland: Flughálka er í Kalmanstungum, Skorradal, Dragavegi, og Hítardalsvegi annars er hálka eða hálkublettir á flest öllum leiðum, snjóþekja er á Fróðárheiði.

Vestfirðir: Hálka er á flestum fjallvegum en snjóþekja er á Gemlufallsheiði og Steingrímsfjarðarheiði. Hálka, hálkublettir er á láglendi.

Norðurland: Þjóðvegur 1 er að mestu greiðfær en eitthvað er um hálkubletti í Skagafirði. Hálka er á Þverárfjalli og Vatnsskarði en snjóþekja og skafrenningur á Öxnadalsheiði. Hálka og snjóþekja er á útvegum.

Norðausturland: Hálka eða hálkublettir á flestum leiðum en þæfingur er í Dalsmynni og Sunnudalsvegi.

Austurland: Hálka er á Héraði og á fjallvegum en hálkublettir eru með ströndinni.

Suðausturland:
Þjóðvegur 1 er að mestu greiðfær en hálkublettir eru í Suðursveit og hálka á útvegum.

Suðurland: Flughálka er á Grafningsvegi efri og neðri. Krapi er á Lyngdalsheiði og Þingvallavegi annars er hálka eða hálkublettir mjög víða.


Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/