Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 1.3.2018
Færð og aðstæður
Á Suður- og Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti.Á Vestfjörðum eru vegir á láglendi nokkuð greiðfærir en hálkublettir á fjallvegum. Hálka og skafrenningur er á Þröskuldum.
Á Norðurlandi er víða hálka eða hálkublettir.
Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja og eitthvað um skafrenning.
Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálka og skafrenningur er við Kvísker.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í flestum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn. Sjá nánar hér
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.