Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 1.3.2018

1.3.2018 11:17

Færð og aðstæður

Á Suður- og Vesturlandi er víða greiðfært á láglendi hálka eða hálkublettir. Hálka er á Holtavörðuheiði.

Á Vestfjörðum eru vegir á láglendi nokkuð greiðfærir en hálkublettir á fjallvegum. Hálka og skafrenningur er á Þröskuldum. 

Á Norðurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Flughált er á Vatnsskarði.

Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja. Snjóþekja eða hálkublettir eru með suðausturströndinni. 

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í flestum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.