Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 1.3.2018
Færð og aðstæður
Á Suður- og Vesturlandi eru vegir á láglendi víðast hvar greiðfærir en hálkublettir eru á fjallvegum sem og á nokkrum leiðum á Suðurlandi. Hálka er á Hellisheiði, Holtavörðuheiði og á Skeiðavegi.Á Vestfjörðum eru vegir á láglendi nokkuð greiðfærir en hálkublettir á fjallvegum. Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði og þæfingsfærð er á Þröskuldum.
Á Norðurlandi er víða hálka eða hálkublettir. Éljagangur er í Ljósavatnsskarði og við Mývatn.
Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja. Þæfingsfærð er á Fjarðarheiði. Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í flestum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn. Sjá nánar hér
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.