Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.12.2017

13.12.2017 17:30

Hreindýr á Austur og Suð-austurlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. 

Færð á vegum

Á Suður- og Suð-vesturlandi er víðast hvar snjóþekja, hálka og hálkublettir.

Hálka er á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og snjóþekja á stöku stað. Flughált er á Bjarnarfjarðarhálsi, eins frá Patreksfirði að Kleifaheiði. Ófært er yfir Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi en meira um hálkubletti og éljagang á norð-austurlandi. Skafrenningur er á Fjöllunum.

Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Austurlandi en snjóþekja á stöku stað. Með suð-austurströndinni er allvíða hálka eða hálkublettir á vegum. Ófært um Öxi en þæfingur á Breiðdalsheiði.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.