Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.12.2017

13.12.2017 16:04

Framkvæmdir

Miðvikudaginn 13. desember frá kl. 09:30 og fram eftir degi verður unnið við að taka niður teinagirðingar á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk. Hraði um vinnusvæðið verður lækkaður í 50 km/klst og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Miðvikudaginn 13. desember frá kl. 09:30 og fram eftir degi verður unnið við að setja upp vegrið á Vesturlandsvegi við Esjuberg á Kjalarnesi. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Hreindýr á Austur og Suð-austurlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. 

Færð á vegum

Á Suður- og Suð-vesturlandi er víðast hvar snjóþekja, hálka og hálkublettir.

Hálka er á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og snjóþekja á stöku stað. Flughált er á norðanverðum Innstrandavegi og á Bjarnarfjarðarhálsi, eins frá Patreksfirði að Kleifarheiði. Þæfingsfærð um Hálfdán. Ófært er yfir Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi en meira um hálkubletti og éljagang á norð-austurlandi. Skafrenningur er á Fjöllunum.

Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Austurlandi en snjóþekja á stöku stað. Með suð-austurströndinni er allvíða hálka eða hálkublettir á vegum. Ófært um Öxi en þæfingur á Breiðdalsheiði.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.