Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.12.2017

13.12.2017 8:52

Færð og aðstæður

Á Suður- og suðvesturlandi er víðast hvar snjóþekja, hálka og hálkublettir.

Hálka og snjóþekja er á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og snjóþekja á stöku stað. Flughált er í Ísafjarðardjúpi, á Innstrandavegi og nágrenni Hólmavíkur, á Bjarnarfjarðarhálsi, Milli Klettsháls og Króksfjarðarness og út á Reykhóla. Þæfingur er á Þröskuldum og éljagangur en ófært er yfir Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi en meira um hálkubletti á norð-austurlandi. Flughálka er inn Norðurárdal og í Köldukinn. Snjókoma er á Öxnadalsheiði, éljagangur í Eyjafirði og Skafrenningur er á Fjöllunum.

Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Austurlandi en snjóþekja á stöku stað. Með suð-austurströndinni er allvíða krapi eða hálka á vegum. Ófært  um Öxi en þæfingur á Breiðdalsheiði.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.